Þar sem allt snýst um fegurð og snyrtingu... að sjálfsögðu er ég að tala um snyrtifræði!!!
Myndir!!!
24.04.2006 14:17:14 / engill

24.apríl 2006

ég er komin með nýtt blogg...

www.fegurd.bloggar.is

þeir sem vilja minnast mín er bent á bankareikninginn minn....

over and out.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 15:20:24 / engill

Sumardagurinn fyrsti...

Jæja, öllsömul. Ég vona að þið hafið notið páskanna og allar kræsingarnar sem að fylgir þeim! ég allaveganna naut þess alveg í botn þar sem ég fór til ísafjarðar og var viðstödd tónlistarhátiðina ALDREI FÓR ÉG SUÐUR. Sem er eiginlega hefð hjá mér að mæta á hvert ár, hverja páska. Hitti marga gamla vini og skemmti mér alveg konunglega þarna í snjónum og góða veðrinu. Takk æðislega Elmar og Helga fyrir gestrisnina! :D verst að Helga sé að flytja bara eftir mánuð eða svo, þannig að næst þarf maður að panta tímanlega á gistihúsum bæjarins sem er kannski ekki svo spennandi. En hún Dísa vinkona átti afmæli og hélt upp á það með pompi og prakt skilst mér og óska ég henni hjartanlega til hamingju með þann dag og með von um að hún hafi skemmt sér vel þetta kvöld, verst að ég skyldi ekki hafa verið í bænum til að taka þátt í gleðinni. Skólinn er byrjaður á fullu aftur og kláraði ég uppkastið af hinni víðfrægu ritgerð sem var að gera mig gráhærða, en vonandi kom þetta ekki sem verst út, en fæ ég að vita það innan skamms þegar henni verður skilað aftur til mín til lagfæringar.

En hafið það gott og gleðilegt sumar! :haha:

Jenný.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 22:32:44 / engill

PÁSKAR!!!

Jæja, páskafríið er komið!!!

GLEÐILEGA PÁSKA ÖLL SÖMUL OG HAFIÐ ÞAÐ NÚ GOTT! ÞIÐ EIGIÐ ÞAÐ ÖLL SKILIÐ!!

Jenný kveður...


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 00:16:55 / engill

Mín heilaga bæn

Ef það eru ekki bara erfiðastir tímar mínir núna í lífinu þá veit ég ekki hvað, er komin með gjörsamlega ógeð á þessum skóla.. og hef eina viku núna til þess að skila lokaritgerðinni minni sem er sko um 60 bls. takk fyrir! Og til þess að toppa þetta allt verð ég ein, ALEIN alla helgina og restinni af vikunni þar sem kallinn er að fara til London, stingur bara af einmitt þegar maður þarf mest á honum að halda, bæði hversu mikið ég þarfnast hans sem maðurinn minn og vegna hæfileika hans á ritgerðarsviði! En nei, Jenný, gat ekki verið svona heppin að allt gengi bara eins og í sögu, heldur stendur hún ein eftir í þvíliku stressi og plús það að þetta er prófavika og geðveiki! ég held bara að játi mig sigraða og komi mér út úr þessu stressi og pressu áður en ég lendi á stofnunni Klepp eða að ég vakni upp gráhærð og hef elst um 40 ár! Hvað finnst ykkur? Er einhver þarna úti sem virkilega getur hjálpað mér að smyrja saman heimildarritgerð (fyrstu skil er á mánudaginn)???? Ég bið til Guðs að ég komist yfir þetta.... AMEN

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 22:19:24 / engill

Enn ein helgin á enda...

Jæja, ég held að ég hafi fengið netta vínvímu um helgina... er bara búin að fá ógeð á öllu sem inniheldur alkohól.. Ojj, barasta.. er bara komin í smá pásu núna.. En vil ég bara þakka stelpunum fyrir æðislegt föstudagskvöld, þar sem dönsuðum frá okkur allt vit á einu dansgólfi bæjarins. Fleira var það ekki að sinni, enda skyndipróf á morgun og hellt verður í sig af pappírsflóði í ritgerð einni sem seint verður skilað, en ekki verður hellt sér í áfengið að þessu sinni, Takk fyrir mig...

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 14:32:23 / engill

Dauð...



Take this quiz at QuizGalaxy.com
Þetta á sem sagt eftir að standa á mínum legsteini samkvæmt niðurstöðu netsins...

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 17:32:57 / engill

Set off...

The first one made me hold my breath, not surprised I knew what´s next

(not) even time will tell if we were right. Some thoughts remain remind the pain of me.

The second one has made me think... a boy for blue a girl for pink

I´ll never know wich it would´ve been, what if all the dreams we dream come true?

....a vicious crime or just an option?

....but, if you´re asking me - I´d rather abort than overpopulate...

My hands are cold I´m feeling nothing. The thoughts I´ve been thinkin´ need uncorking

now trickle into words one by one. I can´t help thinkin´ daughter - thinkin´ son...

Turn it off for me it´s setting fire to my head

reminding me to think of something I can not forget

I hear a vivid voice inside of me. Shouting so loud impatiently.

All surprised faces starin´ stone cold in my eyes

Smell yourself, excuse me please, but are your kids allright?

I won´t make excuses on our behalf - decision´s made there´s no way turnin´ back.

Man to man - I still stand

age is a way to explain our delay

Time will tell - good or bad

if we can make one again!

The fire's burnin´ out but, it isn´t time to forget?

This is what is done it´s what we´ve heard & what´s been said

by now an infant should be born

Instead it´s all just like it was...


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 17:05:41 / engill

....

jæja, góðir hálsar. Nú hef ég losnað við veikindin og er komin aftur úr rúminu, minns er bara búin að vera veikur.

Lífið í dag getur umturnast á morgun, það hef ég lært. Á einum degi getur allt breyst og allt það gamla og það sem hélt þér við efnið getur farið á morgun.

Ég hef reynt að gera allt mitt til að standast undir ákvörðun um hvernig allt eigi að fara og reynt að plana framkomu mína og hegðun en á einhvern hátt hefur það farið eins og vindurinn sem tekur með sér ruslið af götunni og færir það á einhvern annan stað.

Allir þeir gamlir tímar sem yljar okkur þegar við hugsum til baka breytist í einni svipan og manni líður eins og einhver hafi tekið það í burtu og finnst vera lítið gert af þeim tíma.

En svona er lífið og ekkert hægt að gera!


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 18:08:41 / engill

Ég hef...

Ég hef...

( ) klesst bíl vinar/vinkonu -

(X) verið ástfangin/n

( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu

(X) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki

( ) verið handtekin/n

( ) farið á blint stefnumót

(X) logið að vini/vinkonu

(X) skrópað í skólanum

(X) horft á einhvern deyja

( ) farið til Canada

( ) farið til Mexico -

(X) ferðast í flugvél

( ) kveikt í þér viljandi -

(X) borðað sushi

( ) farið á sjóskíði

(X) farið á skíði

( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu

(X) farið á tónleika

(X) tekið verkjalyf

(X) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna

(X) legið á bakinu úti og horft á skýin

(X) búið til snjóengil

(X) haldið kaffiboð

(X) flogið flugdreka

(X) byggt sandkastala

(X) hoppað í pollum

(X) farið í "tískuleik"

( ) hoppað í laufblaðahrúgu -

(X) rennt þér á sleða

(X) svindlað í leik

(X) verið einmana

(X) sofnað í vinnunni/skólanum

( ) notað falsað skilríki

(X) horft á sólarlagið

(X) fundið jarðskjálfta

(X) sofið undir berum himni

(X) verið kitluð/kitlaður

(X) verið rænd/rændur þokkalega!

(X) verið misskilin/n

( ) klappað hreindýri/geit/kengúru

(X) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi

(X) lent í bílslysi

( ) verið með spangir/góm

(X) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni

(X) borðað líter af ís á einu kvöldi

(X) fengið deja vu

( ) dansað í tunglskininu

(X) fundist þú líta vel út

(X) verið vitni að glæp

(X) efast um að hjartað segði þér rétt til

( ) verið gagntekin/n af post-it miðum

(X) leikið þér berfætt/ur í drullunni

(X) verið týnd/ur (X) synt í sjónum

(X) fundist þú vera að deyja

(X) grátið þig í svefn

(X) farið í löggu og bófa leik

( ) litað nýlega með vaxlitum

(X) sungið í karaókí

( ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala um krónur, fimmkalla og tkalla hérna)

(X) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki

(X) hringt símahrekk

(X) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér

(X) stungið út tungunni til að ná snjókorni

(X) dansað í rigningunni

( ) skrifað bréf til jólasveinsins

( ) verið kysst/ur undir mistilteini

( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um

(X) blásið sápukúlur

( ) kveikt bál á ströndinni - einnota grill

(X) farið á rúlluskauta/línuskauta

(X) hefur einhver óska þinna ræst

( ) farið í fallhlífastökk

( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 22:30:12 / engill

Díana og Hrabba...

Kærar stelpur...

Bæði Díana og Hrafnhildur...

Þar sem mér var boðið til ykkar í afmæli síðastliðna helgi þá vil ég biðjast afsökunar á því að ég sá mér ekki fært um að mæta, þykir mér það mjög leiðinlegt en vegna aðstæðna kokmst ég ekki, þið vitið hvað gerðist! :haha:

Ég þakka alveg ógó mikið fyrir boðin, hefði verið gaman að tjútta alla helgina bæði föstudag og laugardag...

Ég er mjög sorgmædd vegna þess en ég ég veit að þið hafið skemmt ykur vel samt án mín!!! :|

Takk, takk...


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 17:38:58 / engill

London trip og flipp!

Londonferðin var hreinasta snilld í alla staði, skemmti mér alveg konunglega...;)

Það var sko mikið og margt sem gerðist í þessari ferð og m.a. var ölvun rosalega þegar líða tók á kvöldin, síma-at voru gerð kl. 5 á nóttu til til annarra hótelgesta (meðal annars að vekja upp gamalt fólk), kennd voru köllum að segja "ÉG ER GAMALL OG LJÓTUR MAÐUR" á íslensku á meðan þeir héldu að þetta þýddi eitthvað allt annað! :haha: Við létum house-keeping kellingarnar fá flog yfir herberginu okkar, þegar þær opnuðu hurðina að herberginu vegna drasl og viðbjóði. Við drukkum alla Breta undir borðið eins og sannir íslendingar gera, við verlsuðum alla peningana frá okkur, við vorum keyrðar niður vegna öfugu-megin-umferð, sem var frekar lengi að venjast, við gengum og vorum inni á einu flottasta og dýrasta hóteli í allri London í 3 tíma láta nudda okkur og þjóna okkur af hvítklæddum þjónnum sem báru til okkar drykki. Er hægt að óska sér eitthvað betra 8)

Eitt kvöldið ákváðum við það ráð að taka að skella okkur á einn flottasta skemmtistaðinn í London eða einum af þeim flottustu, þar sem allt ríka og fræga fólkið fer. Við komum sáum og sigruðum sem endaði með því að við gengum þaðan út eftir c.a. klukkutíma, nokkuð sniðugt það, þar sem kokteillinnn kostaði heilar 7.000 kr eða svo (reyndar kanna af kokteili) annars staðar kostar það aðeins 800. :$ Komumst þarna inn á þennan stað í gegnum eitthvað fólk sem var fyrir framan okkur í röðinni og vorum allt í einu boðin í eitthvað rosa flott afmæli sem var haldið þarna á staðnum. Við föttuðum á endanum hvers vegna þetta fólk var svo hjálpsamt að hleypa okkur inn, þar sem aðeins er hleypt inn fólki sem er á gestalista (þegar ég tala um fólk þá meina ég 4 stráka og eina stelpu). Þetta fólk þurftu fleiri stelpur í vinahópinn til þess að komast inn.!!!! Við íslensku stelpurnar frekar seinar að fatta og héldum bara að Bretarnir væru svona vinalegir. Hópur af strákum er ekki hleypt inn á neina skemmtistaði nema að vera með stelpum (fleiri eða jafnmörgum)!!!! Við vorum svo alúðlegar við þá, fræða þá um Ísland og hvað Blue lagoon væri, sem ég held að ég sé að fatta núna að við vorum örugglega ekkert neitt spennandi stelpur hvað þá með eitthvað áhugavert umræðuefni :!:

EN hvað um það, við fundum sko skemmtistað í lagi, mjög ódýra og alveg hreint frábæra stað. Við héldum okkur bara við hann á endanum. :D

Við fórum að einn rosa fínan veitingastað sem var frekar dýr en það er náttla must að fara á einn svona fínan stað þegar maður er í löndum. Við fengum okkur það sama og föttuðum ekki að Roasted Beef væri ofþurrkað kjöt. Við vorum komnar með vatn í muninn af að sjá þetta á matseðilinum þar sem við vorum einungis bara búnar að lifa á pizzum og subway. Við vorum ekki sáttar og ákváðum að kvarta og spyrja mjög hneykslaðar hvernig Bretar elduðu eiginlega nautakjöt. Greyið þjóninn var í basli með að útskýra fyrir okkur að þetta væri ofþurrkað kjöt sem við sjálfar höfðum pantað okkur og kjötið væri búið að vera þurrkað í mjög langan tíma!!! Halló? hver fær sér OFþurrkað kjöt í staðin fyrir að fá sér djúsí og safaríkt kjöt?? Ég bara...spyr..! :$

Við gátum hlegið mjög lengi að þessu eftir á en þetta skemmti kvöldið fyrir okkur þá.! Algjör snilld það!

Við lentum sko í allskonar fólki, sem við rifumst í og annað. Gaur einn sem ég hitti í einni verslun sem skipaði mér að opna á mér klofið því að hann gæti sko alveg riðið mér og kallaði mig síðan BITCH! já, þessir Bretar eru skrítnir...!

EN vá, ég gæti verið hérna í allan dag og skrifað um þessa ferð en þar sem maður er í skóla og svona þá hefur maður ekki alveg allan þann tíma...:cry:

Continue later... 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 14:14:25 / engill

Londonferð lokin!

Jæja, er lent á klakann og skólinn er byrjaður aftur... var lent um kl. 2 í nótt þannig að það er frekar mikil þreyta í gangi. En hvað um það... ferðin var alveg æðisleg, gekk vel í alla staði og ég get bara verið mjög sátt. Við skelltum okkur í eitt bestu SPA meðferð sem örugglega fyrirfinnst á þessari jörð... Mjög sátt með það... Ég náði öllum prófunum nema 2 sem ég þarf örugglega að taka bara prófið aftur. Þetta verður ekkert mál. En það styttist í útskriftina þannig að það er mikið um að vera.. Talvan er eitthvað biluð þannig að ég hef þetta bara stutt. Allt gott að frétta og er bara sátt! Thank you... Jenny has arrived to Iceland....

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 04:37:37 / engill

London

Ég er farin til London!

Skellti mér á Timo Maas í gær á NASA og skemmti mér frábærlega, þar sem eitthvað er að tölvunni, hef ég þetta bara stutt..

Eigiði góða helgi og góða viku..

Jenny out.... in London...


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 14:31:51 / engill

Prófin...

Prófin hafa skullið á og ég er svo ánægð þar sem kláraði verklegu prófin í seinustu viku, stressið er þannig séð búið.

Ég er einnig mjög ánægð þar sem ég kláraði minn síðasta vinnudag sl. föstudag þannig að þetta er lúxus fyrir námsmenn eins og mig sem þurfa að standa í erfiðum skólum, ég mæti í próf kl. 8 á morgnana, fer síðan heim og hef allan daginn fyrri mig :haha: en að sjálfsögðu fer þessi tími í að læra fyrir næsta próf. Síðasta prófið er núna næsta mánudag og þá er komið vikufrí og ég ákvað svo sannarlega að nýta tímann minn vel og skella mér barasta til london, baby!

ójá, og ég ætla sko að láta dekra við mig finally! Þar sem ég hef bara verið að dekra við aðra undanfarnar vikur með lúxusandlitsböðum, handsnyrtingu, gervinöglum, fótsnyrting og nudd og margt, margt fleira, þá held ég nú alveg að ég eigi þetta skilið!

En svo er náttla annað mál með einkunnirnar, en förum ekkert nánar út í það elskurnar! :$

Sylvía Nótt, eins og þú veist, þá hef ég alltaf staðið við bakið á þér og eins og það sannaði sig þá eru það miklu fleiri sem að gera það!

Hjartanlega til hamingju með sigurinn, þú áttir hann svo sannarlega skilið, dúllan mín. Já ég er sko stoltur aðdáandi nr.1 !!! :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 18:01:19 / engill

Sunnudagur

Ég hef sjaldan skemmt mér svona vel eins og ég skemmti mér í gærkvöldi. Kvöldið var algjör snill, og þakka ég bara kærlega fyrir mig. Þegar stelpur koma margar saman, þá er gaman. Vorum allar haugadrukknar og létum eins og við ættum allan heimin.. algjör snilld. Bara takk fyrir mig, er bara algjörlega fullnægð.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7